Fréttir á stjarna.is

NÝRRI FRÉTTIR

2010

2009

2007-2008

ELDRI FRÉTTIR

2003-2004

31. mars 2005

Myndir sendar af Gerlach-bílnum.

Fyrir skömmu fékk Örn Sigurðsson fyrrum formaður Fornbílaklúbbs Íslands sendar myndir frá Tim Olson í Bandaríkjunum af hinum sögulega Gerlach-bíl, sem minnst er á hér að neðan og er af gerðinni Mercedes Benz 290 árgerð 1937,og er fyrrum aðalræðismannsbíll Þriðja ríkisins á Íslandi. Tim var nýlega á ferð um Ohio og rakst þar á Benzann og eiganda hans Rudi Kamper.


8. apríl 2005

Gerlach-bíllinn fundinn!

Einn sögufrægasti bíll sem ekið hefur um íslenska vegi, Mercedes Benz árgerð 1937, er kominn í leitirnar í Bandaríkjunum, 33 árum eftir að hann var seldur frá Íslandi. Benzinn var embættisbíll Werner Gerlachs, aðalræðismanns Þjóðverja á Íslandi, og er talinn hafa verið njósnabíll Þriðja ríkisins. Bíllinn er uppgerður og allur sem nýr, málaður í gráum litum þýska flughersins Luftwaffe. Ekki hafa fundist í honum nein framleiðslunúmer, en það staðfestir að bíllinn hafi verið sérpantaður af njósnadeild þýska hersins. Í blæju hans fannst árið 1969 þéttriðið loftnet sem bendir eindregið til þess að bíllinn hafi verið færanleg talstöð ætluð til samskipta við kafbátaflota Þjóðverja í Norður-Atlantshafi. Þegar bílasafn Fornbílaklúbbsins er risið í Elliðaárdal verður unnið að því að fá bílinn lánaðan til landsins og kynni hans við Íslendinga endurnýjuð!

Smellið á myndir til að sjá stærri útgáfu.

Myndin sýnir bílinn eins og hann leit út árið 1969, en þá var hann í eigu Jóns Hjörleifssonar og Auðuns Gunnarssonar.

 

Þessi mynd var tekin árið 1974 í Columbus í Ohio-ríki, en við hlið hans stendur George Cradick sem síðar gerði bílinn upp. Myndin sýnir vel vínrauða litinn sem bíllinn var sprautaður í haustið 1968 .

 

Hér er bíllinn eins og hann lítur út í dag, uppgerður og glæsilegur, í einkennislitum þýska flughersins. Núverandi eigandi er Rudi Kamper sem búsettur er í Cleveland í Ohio-ríki.

Hér má lesa erlenda grein um bílinn úr gömlu blaði.

Hér má sjá frétt Ómars Ragnarssonar á RÚV.

Örn Sigurðsson

12. febrúar 2005

Nú hefur nýju útliti á vefsíðu okkar verið hleypt inn á veraldar vefinn. Mikil vinna liggur að baki síðunni og hafa aðstandendur Mercedes-Benz klúbbs Íslands sumir hverjir lagt mikla vinnu í vefsvæðið. Eitthvað af eldra efni sem var á gamla vefnum er í uppfærslu og vinnslu upp á nýtt og mun það byrtast svona eftir hendinni þegar tækifæri gefst til. Hönnuður nýju síðunnar situr í stjórn félagssins og heitir Magne Kvam og er hann einn eiganda margmiðlunar-fyrirtækisins Caoz, hægt er að fræðast nánar á www.caoz.is

Við vonum að þið njótið nýju síðunnar okkar, en ef að þið hafið athugasemdir getið þið sent þær á vefstjorn@stjarna.is

11. febrúar 2005

Heyrst hefur að Útfarastofa Kirkjugarðanna hafi verið að huga að endurnýjun á bílakosti sínum að hluta og hafi m.a. verið að skoða Mercedes-Benz bifreið, yfirbyggðar af Binz Karroserie í Þýskalandi. Við höfum það eftir óstaðfestum heimildum að slíkur vagn hafi nú þegar verið pantaður og sé væntanlegur til Íslands innan tíðar. Það eru því líkur fyrir að áhugamenn um Mercedes Benz gætu átt möguleika á að njóta síðustu bílferðarinnar hér á jörð, þó svo að við vonum að þeir fari nú ekki að hrynja niður bara til þess eins arna.

31. janúar 2005

Eins og kanski eitthverjir hafa vitneskju um stendur til að opnað verði formlega nýtt umboð fyrir Mercedes-Benz á Íslandi. Hinu nýja umboði hefur verið valið nafnið, Bílaumboðið ASKJA ehf og mun það hafa höfuðstöðvar að Laugarvegi 170. Bílaumboðið ASKJA er í eigu sömu aðila og eiga HEKLU hf, en þessi félög eru alveg aðskildar einingar og félögin eiga ekki hlut í hvort öðru þó svo að eignahald þeirra sé á sömu hendi. Uppbygging fyrirtækisins er vel á veg komin og stefnt er að því að söludeild, varahlutadeild og verkstæði ásamt hraðþjónustudeild fyrir fólksbíla verði formlega opnuð að Laugarvegi 25. febrúar n.k. Söludeild og varahlutasala fyrir atvinnubíla mun fyrst um sinn hafa aðsetur að Laugarvegi, en mun upp úr miðju ári 2005 líklega flytjast í nýtt húsnæði sem fyrirhugað er að byggja í Klettagörðum fyrir þá starfsemi ásamt verkstæði fyrir atvinnubílana. Við viljum óska hinum nýja umboðsaðila til hamingju með þennan áfanga og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni og vonum að okkar skjólstæðingar, áhugamenn um Mercedes-Benz, eigi góð samskipti og viðskipti við hið nýja félag í framtíðinni .


28. janúar 2005

Nú fer að styttast í að vefsvæðið Stjarna.is verði eins og hálfs árs gamalt. Eitt og hálft ár er ekki langur tími en hvern hefði samt órað fyrir því að teljari síðunnar ætti eftir að nálgast 60.000 heimsóknir á þessum stutta tíma. Það er því ljóst að þessi vefur okkar er að ná því að verða einn vinsælasti bílavefur á íslandi í dag.


23. janúar 2005

Eins og menn vita fylgir áskrift af tímaritinu Mercedes-Benz Classic Magazine því að vera í klúbbnum. Okkur tókst illa á síðasta ári að fá nægjanlegt upplag af blöðunum sent til okkar, því urðu dálitlar tafir á afhendingu blaðsins til félaga klúbbsins. Okkur vantar enn nokkur blöð til þess að geta sent út blaðið sem kom út í desember (restin kemur vonandi fyrir mánaðarmótin). Menn verða að fyrirgefa okkur þessa byrjunarörðuleika. Til þess að bæta þessi mál, verður nú sú breyting á að við sendum út lista til Þýskalands með nöfnum og heimisföngum klúbbfélaga og þeir fá síðan blaðið sent beint heim til sín frá Mercedes Classic Center. Það er engin ástæða til þess að ætla annað en að það ætti að ganga smurt fyrir sig, og menn ættu að fá blaðið fljótlega eftir að það kemur út í framtíðinni. Til fróðleiks má geta þess að slík áskrift kostar 27.20EUR eða rúmar 2.200kr og þá er nú félagsgjöldin nánast að fullu greidd.