29. mars 2004
Eins og kanski flestir sem heimsótt hafa þessa síðu áður hafa tekið eftir hefur vefurinn tekið nokkrum breytingum. Stjarna.is muN framvegis verða heimasíða Mercedes-Benz klúbbs Íslands en ekki einkasíða einstaklings með áhuga á Mercedes Benz bílum. Vefurinn mun því á næstu misserum taka nokkrum breytingum og er þetta aðeins byrjunin á þeim.
Athugasemdir óskast sendar á vefstjorn@stjarna.is
21. ágúst 2003
Spjallvefur á Stjarna.is hefur nú verið opnaður og er von okkar að það verði til þess að vekja upp líflegar umræður um málefni Mercedes-Benz ökutækja og hugarfóstur þeirra sem þar taka þátt í umræðunum. Nokkrar tafir urðu á uppsetningu þessa vefs, en þær komu til af ýmsum ófyrirsjánlegum ástæðum.
18. ágúst 2003
Stofnfélagarnir fimm. F.v Örn, Steingrímur, Sveinn, Gunnar og Rúnar.

Þann 14. ágúst síðastliðin var haldinn formlegur stofnfundur fyrsta Mercedes-Benz félags á Íslandi. og hefur það hlotið nafnið Mercedes-Benz klúbbur Íslands. Stofnun félagssins er samvinnuverkefni fimm einstaklinga og Ræsis hf fyrir hönd Daimler-Chrysler samsteypunar, en félagið heitir á ensku The Mercedes-Benz Club of Iceland. Stefnt er að því að fá þetta félag að fullu viðukennt af Mercedes Benz Classic Car Club International (MBCCCI), sem er alþjóðlegt klúbbasamband á vegum Daimler-Chrysler. Fyrir stofnununina hafði farið fram forskráning félagsins í sambandið, og fengist með því vilyrði fyrir því að sambandið viðukendi hið nýja félag. Slík viðurkenning er mikill heiður fyrir félög sem þetta, enda gerist félagið með því hluti af alheimsneti klúbba á vegum Daimler-Chrysler. |